Flugklúbbur Flugskóla Íslands
Flugvélar flugklúbbs FÍ eru;
Cessna 152II (1980), TF-IFF
Cessna 172N (1977), TF-FTI
Cessna 172N (1980), TF-JEG
Hawker Beechcraft C23 (1976), TF- BON
Piper Aircraft PA-28-161 (1980), TF-PIA
Skilyrði fyrir klúbbaðild
1. Aðildarfélagar verða að vera með einkaflugmannspróf.
2. Ekki má bóka vélarnar í kennslu, en hægt er að nota þær til endurnýjunar áritunar hjá prófdómara SGS.
3. Ef farið er út á land og dvalið er yfir nótt, reiknast biðtímagjald. Greiða þarf að lágmarki 2 flugtíma fyrir hvern sólahring, hvort sem flogið er eða ekki. Ef veður hamlar flugi fellur gjaldið niður (þ.e. 2 tíma gjaldið).
4. Einungis má lenda á skráðum flugvöllum samkvæmt AIP.
5. Verði tjón sem hlýst af vítaverðu gáleysi flugmanns, greiðir hann skemmdir að því marki sem tryggingar bæta ekki.
Verðskrá
Aðildargjald er 250.000 kr sem greiðist tilbaka þegar viðkomandi segir sig úr klúbbnum.
Mánaðargjald er 8.400 kr. sem er óendurkræft.
Verðskrá 1. maí 2017
Verðskrá 1. maí 2017 | Verð fyrir flugklúbbsmeðlimi | Fullt verð | ||
Flugklúbbur -fjögurra sæta | TF- FTI, TF-JEG, TF-BON, TF-PIA | 19.200kr. | 27.850 kr. | |
Flugklúbbur - tveggja sæta | TF - IFF | 16.900kr. | 23.990 kr. |